Caricamento

Slzii.com Ricerca

Ricerca (Notizia)

Árleg vindlahátíð blásin af
Árleg kúbönsk vindlahátíð, Festival del Habano, hefur verið blásin af á Kúbu, vegna neyðarástands sem skapast hefur í orkumálum eftir að Bandaríkin settu hafnarbann á olíuflutninga til Kúbu.Hátíðin hefur verið haldin í 25 ár og átti að fara fram í lok mánaðarins. Hátíðin dregur að sér áhugafólk um kúbanska vindla, viðskiptafólk og blaðamenn hvaðanæva að úr heiminum. Meðal fastra viðburða hátíðarinnar er uppboð á lúxus-vindlum og reyktóbakskrukkum. Á síðasta ári voru tekjur af uppboðinu tæpar nítján milljónir dollarar, sem renna til heilbrigðiskerfis landsins.Víðtækt rafmagnsleysi hefur verið á Kúbu undanfarið og skortur á eldsneyti hefur sömuleiðis valdið miklum samgöngutruflunum. Mörg ríki hafa ráðlagt ríkisborgurum sínum frá því að ferðast til Kúbu vegna ástandsins og fjölmörg alþjóðaflugfélög hafa hætt flugi til eyjunnar þar sem ekki er hægt að tryggja þeim nægt eldsneyti til að fljúga burt.Bandaríkjastjórn hefur hert á þvingunaraðgerðum gegn Kúbu á því rétt rúma ári sem hann hefur verið forseti. Þrýstingurinn jókst enn meira við bann á olíuflutningum til Kúbu, en án innfluttrar olíu fer öll rafmagnsframleiðsla, – sem hefur verið verulega stopul á Kúbu í áratugi, endanlega úr skorðum.Ítarlega var fjallað um ástandið á Kúbu í fréttaskýringaþættinum Speglinum fyrr í vikunni. Hægt er að lesa og hlusta fréttaskýringuna í tenglinum hér fyrir neðan.
2026-02-15 00:45:27

Cosa fai?

0.037167072296143


Notizia
Notizia

Ultime notizie e titoli
Árleg kúbönsk vindlahátíð, Festival del Habano, hefur verið blásin af á Kúbu, vegna neyðarástands sem skapast hefur í orkumálum e...
Notizia