Loading

Slzii.com Search

Search (News)

Skamma stund tók að slökkva sinueld í Norðlingaholti
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins slökkti talsverðan sinueld sem kviknaði skömmu eftir miðnætti á fjögur til fimm hundruð metra kafla við ána Bugðu í Norðlingaholti. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir að skamma stund hafi gengið að slökkva eldinn en hann hafi breiðst nokkuð hratt út vegna þess hve hvasst er í veðri. Vitni kveðst í tölvupósti til fréttastofu hafa heyrt háværar flugeldasprengingar hafa kveðið við skömmu áður en eldurinn blossaði upp. Gróður er þurr og því hætta á sinueldum en varðstjórinn sagði kalt í veðri og því umhugsunarefni hví eldarnir kvikni. Dælubíll var á leið að Vífilsstöðum laust eftir klukkan eitt til að slökkva eld sem þar logar á litlu svæði.Fréttin verður uppfærð með upplýsingum um eldinn við Vífilsstaði.
2026-02-22 01:26:17

What are you doing?

0.044386863708496


News
News

Latest News and Headlines
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins slökkti talsverðan sinueld sem kviknaði skömmu eftir miðnætti á fjögur til fimm hundruð metra kafla vi...
News