Cargando

Slzii.com Buscar

Buscar (Noticias)

Sex létust og fimm slösuðust í eldsvoða í rútu
Sex eru látnir og fimm eru slasaðir, þar af þrír alvarlega, eftir að eldur kom upp í rútu í Sviss í gærkvöld. Rútan var í smábænum Kerzers sem er staðsettur um 20 kílómetra vestur af höfuðborginni Bern.Fréttaveitan AFP hefur eftir Frederic Papaux, talsmanni lögreglu Fribourg-fylkis, að upptök eldsins séu ókunn en að lögregla telji hann vera af mannavöldum og að mögulega hafi verið um íkveikju að ræða.Ekki liggur fyrir hversu margir voru í rútunni þegar eldurinn kom upp en nokkrir farþegar náðu að koma sér úr rútunni af sjálfsdáðum áður en björgunarfólk kom á vettvang. Eldurinn breiddist hratt út í rútunni sem er gjöreyðilögð eftir brunann. Lögreglan rannsakar málið og hefur óskað eftir vitnum að eldsvoðanum.Rútan er svokölluð PostBus, almenningsrútur sem keyra milli dreifbýlis og þéttbýlis í Sviss, og flytja bæði farþega og póst. Um hálf milljón farþega notar rúturnar á hverjum degi, einkum skólabörn.Þetta er annar alvarlegi eldsvoðinn sem kemur upp í Sviss á tæpum þremur mánuðum en 41 létust og 115 slösuðust í gríðarlegum eldsvoða á skemmtistað á skíðasvæðinu Crans-Montana á nýársdag.
2026-03-11 02:08:17

¿Qué estás haciendo?

0.037638187408447


Noticias
Noticias

Últimas noticias y titulares
Sex eru látnir og fimm eru slasaðir, þar af þrír alvarlega, eftir að eldur kom upp í rútu í Sviss í gærkvöld. Rútan var í smábænum...
Noticias