Vill tryggja vettvang þangað sem þolendur ofbeldis innan stofnana geta leitað til
„Það er óþolandi að brotaþolar þurfa að standa í stappi við yfirvöld árum og áratugum saman eftir viðurkenningu og úrlausn sinna mála,“ skrifar Drífa Snædal, talskona Stígamóta, í aðsendri grein á Vísi. Hún vill að komið verði upp ákveðnum vinnubrögðum og vettvangi fyrir brotaþola að leita til í stað handahófskenndra viðbragða í einstökum tilfellum, sem hafi verið raunin til þessa. Í grein sinni fer hún yfir ofbeldisverk sem unnin hafa verið innan stofnana hér á landi og viðbrögð stjórnvalda við þeim. Hún vísar til þekktra mála sem komið hafa upp á síðustu árum, svo sem Landakotsmálsins, Hjalteyrar, Laugalands, Breiðavíkur og brotaþola einstakra manna, auk nýrri uppljóstrana á Múlaborg og í Bakkakoti. „Því miður munu fleiri mál sennilega koma upp á yfirborðið, kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi hefur ekki verið útrýmt og oft er fjöldi brotaþola á bak við hvern geranda.“ Drífa segir skiljanlegt að brotaþolar verði reiðir þegar þeir fá ekki viðbrögð frá yfirvöldum þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir og ákall um rannsóknir, afsökunarbeiðnir eða sanngirnisbætur. „Ný og ný mál koma upp og brugðist er við, stundum handahófskennt í stundinni og oft bara gagnvart brotaþolum þess einstaka máls. Það er gott og gilt en brotaþolar sem ekki hafa fengið áheyrn sitja óbættir hjá garði,“ skrifar Drífa og vísar til ákalls þeirra sem upplifðu ofbeldi á Hjalteyri um áheyrn og úrlausn. Auk þess hafi brotaþolar Skeggja Ásbjarnarsonar grunnskólakennara sent dómsmálaráðherra erindi. Drífa segir að ábyrgðin á úrbótum og réttlæti eigi ekki að vera á herðum þolenda, það sé heldur ekki sæmandi að brugðist sé handahófskennt við í einstaka málum en að önnur gleymist. „Við verðum að koma upp ákveðnum vinnubrögðum þar sem brotaþolar ofbeldis í skjóli stofnana geta sagt frá, fengið áheyrn og viðurkenningu, jafnvel afsökunarbeiðni og sanngirnisbætur ef því er að skipta. Málin eru því miður of mörg til að vera með handahófskennd viðbrögð í hvert skipti sem ný mál birtast í fjölmiðlum. Slíkt veldur sárum langt út fyrir einstaka mál og ýfir upp erfiðar minningar fjölda fólks og staðfestir áhugaleysi valdhafa í gömlum málum.“
2026-03-18 09:06:58