Loading

Slzii.com Search

Search (News)

„Það eru kynslóðir sem hafa orðið fyrir skaða nú þegar“
Nauðsynlegt er að taka ábyrgð og bregðast við þeim skaðlegu áhrifum í samfélaginu sem fylgir aukinni notkun samfélagsmiðla, sérstaklega fyrir ungt fólk, segir forseti Íslands. Hún vill gera meira í því að draga tæknifyrirtækin til ábyrgðar. Meta, móðurfélag Facebook og Instagram, var dæmt í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum í gær til að greiða 375 milljónir dala – rúma 46 milljarða króna – í bætur fyrir vísvitandi blekkingar um öryggi samfélagsmiðla fyrirtækisins. Forsvarsmenn þess hafi vitað að börn og ungmenni væru berskjölduð fyrir skaðlegu efni. Þetta er í fyrsta sinn sem Meta er sakfellt fyrir slík brot en fjöldi málsókna á hendur samfélagsmiðla- og tæknifyrirtækjum er til meðferðar hjá bandarískum dómstólum. Meðal annars í Los Angeles, þar sem hundruð fjölskyldna saka fyrirtækin um að hanna miðla sína þannig að börn og ungmenni verði háð þeim. Það ýti meðal annars undir þunglyndi og skaðlega hegðun. Nauðsynlegt að bregðast við og taka ábyrgð Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, ræddi samfélagsmiðlanotkun í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun og hvernig samfélagsmiðlafyrirtækin lyfta skaðlegu efni vísvitandi. „Þetta er hannað til þess að lyfta hatri, ofbeldi og sundrungu hraðar en kærleika, umhyggju og góðverkum. Og það er bara staðreynd. Þetta er vel sannað í fjölda rannsókna og fjöldi starfsfólks hjá þessum fyrirtækjum hefur núna, meðal annars fyrir þessum nýfallna dómi á Meta, bent á að þessi fyrirtæki hafi vitað lengi að þetta er hannað til að láta okkur halda að heimur versnandi fer.“ Halla segir það einföldun að símabann í skólum leysi vandann, fullorðnir þurfi ekki síður að passa notkun sína á símum og samfélagsmiðlum. Þeir átti sig oft ekki á þeim veruleika sem unga fólkið býr við á samfélagsmiðlum. „Það eru kynslóðir sem hafa orðið fyrir skaða nú þegar. Ég held við getum ekki haldið áfram að leyfa því að gerast án ábyrgðar. Að mínu mati eigum við að draga þessi stóru fyrirtæki til ábyrgðar, og það er eitthvað að gerast í því. En við verðum held ég bara sjálf að taka ábyrgð á okkar samfélagi,“ segir Halla Tómasdóttir. Viðtalið í heild má heyra í spilaranum hér að neðan. Móðurfélag Facebook og Instagram hefur verið dæmt fyrir að hafa vísvitandi blekkt notendur og gert börn berskjölduð fyrir skaðlegu efni. Forseti Íslands vill að enn meira sé gert til að draga samfélagsmiðlafyrirtæki til ábyrgðar.
2026-03-25 11:39:45

What are you doing?

0.04584789276123


News
News

Latest News and Headlines
Nauðsynlegt er að taka ábyrgð og bregðast við þeim skaðlegu áhrifum í samfélaginu sem fylgir aukinni notkun samfélagsmiðla, sérstakleg...
News